top of page

Bókanir

 

Hafðu samband: 

 

orlandohus15@gmail.com

Leiguverð fer eftir tímasetningu og lengd dvalar.  Við bókun þarf að greiða 30% af leigu til staðfestingar á bókun eða að lágmarki 600$, utan jól og páska en þá er staðfestingargjald hærra.  Við forföll er greidd leiga endurgreidd aðeins að því marki sem tekst að endurleigja viðkomandi leigutímabil. Bókun skal að fullu greidd fjórum vikum fyrir upphaf leigu.
Lokaþrif bætast 250$ ofan á leigu.  

Engin ábyrgð er tekin á aðstæðum sem leigusali hefur ekki stjórn á.  Þar á meðal er seinkun eða niðurfellingu á flugi eða slæmu veðri.

 

Vinsamlegast notið eingöngu plastglös á útisvæði. Erfitt er að þrífa glerbrot á útisvæði og loka gæti þurft sundlaug ef gler brotnar á meðan laug er tæmd og þrifin.

 

Reykingar eru ekki leyfðar inni í húsinu. Vinsamlegast gætið fyllsta hreinlætis við reykingar á útisvæði.

Vegna þrifa er check-out kl. 11 og check-in kl. 18. Ef óskað er eftir að vera lengur á brottfaradegi eða koma fyrr á komudegi, vinsamlegast takið það fram við bókun.  
Oft er hægt að verða við séróskum og við reynum það ávallt ef bókunarstaða og þrif leyfa.

bottom of page